top of page

Greinar

Hamingja

 

Lífið virðist snúast um að finna hamingjuna á einn eða annan veg. Dalai Lama segir líka að tilgangur lífsins sé að finna lífshamingjuna.

En hvernig skilgreinum við hugtakið hamingja? Mín tillaga er að hamingjan er ástand þegar við lifum í núinu og höfum hvorki áhyggjur af fortíðinni eða framtíðinni. Það er greinilegt að áhyggjur hafa slæm áhrif á hamingjutilfinninguna.

 

Oftast er fólk að leita hamingjunnar í eitthverju sem er fyrir utan eigið sjálf. Það geta verið efnislegir hlutir eða tilfinningar til annarra o.s.frv. En hamingjan þarf að koma innan frá óháð ytri áhrifum. Bara með því að finna innra ró og skilyrðislausan kærleika getum við verið hamingusöm. Það er ekki þar með sagt að við eigum að forðast erfiðleika og lifa eins einföldu lífi og mögulegt er. Þvert á móti. Að berjast við erfiðleika styrkir okkur. En erfiðleikar okkar þurfa ekki að gera okkur óhamingjusöm.

Allt hefur sína andstæðu. Það getur ekki verið dagur án nætur. Það getur ekki verið myrkur án birtu. Það getur ekki verið gott án ills o.s.frv. Við getum ekki verið hamingjusöm án þess að vita hvernig er að vera óhamingjusöm. Þegar barn fæðist byrjar það yfirleitt strax að gráta. Barnið upplifir í fyrsta sinn hvernig það er að vera óhamingjusamt. Þegar allt róast og barnið byrjar að sjúga brjóst móður sinnar upplífir barnið hamingju. Svona er þetta lífið út í gegn. Það skaðar ekki að finna fyrir óþægindum í smástund, ef það verður ekki varanlegt ástand.

Við höfum yfirleitt margar útskýringar á hvers vegna við erum ekki hamingjusöm. Það er alltaf eitthvað í veginum. Aðrir geta verið hamingjusamir en ekki við! Sem unglingar getum við ekki verið hamingjusöm fyrr en við höfum lokið skóla og nám og fengið góða vinnu. Svo getum við ekki verið hamingjusöm fyrr en við verðum ástfangin. Þegar við erum í sambúð getum við ekki verið hamingjusöm fyrr en við höfum eignast börn. Svo getum við ekki verið hamingjusöm fyrr en börnin eru flutt að heiman. Þá getum við ekki verið hamingjusöm fyrr en við erum komin á eftirlaun o.s.frv. Þegar við hugsum þannig getum við aldrei verið hamingjusöm. Það mun alltaf vera eitthvað sem vantar. Og hvað svo ef við missum eitthvað af þessu? Þá verðum við strax óhamingjusöm.

Það sem við oft túlkum sem hamingju, er eins konar lífsfylling. T.d. það að vera ástfangin, eiga góða vini, hafa góða vinnu, eiga nóga peninga o.s.frv. Ekkert af þessu er varanlegt. Við getum misst þetta hvenær sem er. En lífshamingju sem við finnum innra með okkur getur enginn tekið frá okkur. 

Fjárhagsleg staða okkar hefur ekki áhrif á hamingjuna. Sá sem er fátækur og hamingjusamur og eignast mikla peninga, verður áfram hamingjusamur. Sá sem er fátækur og óhamingjusamur og eignast mikla peninga, verður áfram óhamingjusamur. 

Hvernig getum við fundið þessa innri ró og kærleika? Góð spurning!
Við getum staldrað við og íhugað hvað við erum að gera. Gerum við það sem við viljum gera? Hvað er það sem við höfum og hvers söknum við?
Maður heyrir svo oft um fólk sem hefur lent í slysi eða alvarlegum veikindum o.s.frv. Þetta hefur svo haft í för með sér að það lítur allt öðruvísi á lífið og tilveruna. Það lærir að meta það sem skiptir það máli. Afleiðingin er oftast að þeir lifa betra og minna stressandi lífi.
Valið er okkar. Eigum við að sitja og bíða eftir slysinu sem breytir lífi okkar til hins betra eða viljum við frekar gera eitthvað að eigin frumkvæði. Við eigum að endurskoða líf okkar. Það er aldrei of seint að breyta til.

Við getum náð innra friði og ró með því að þróa okkur andlega. Við tengjumst nánar því guðlega i okkur. Það að við verðum meira meðvitað um að við erum aldrei ein, skapar meira ró og frið innra með okkur. Guð er alltaf með okkur. Við eigum auðveldara með að finna skilyrðislausan kærleika til alls og alla. Það er enginn sem á það ekki skilið, að fá kærleika.

Að stunda einhvers konar íhugun er góð leið til að finna innra ró og kærleika. Það eru til margar aðferðir, en aðalatriðið er að taka sér reglulega tíma fyrir sjálfan sig frá öllum daglegum áhyggjum og stressi. Það getur verið allt frá að sitja í rólegheitum og hlusta á rólega tónlist til að stunda jóga og hugleiðslu.

R.H.

 

Lífið er flókið!
Ekki flækja það ennþá meira!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  • b-facebook
bottom of page