top of page
Rolf Hannén

 

Ég er af finnsku bergi brotinn og hef búið á Íslandi síðan 1987. Ég flutti hingað frá Kaupmannahöfn, þar sem ég bjó í mörg ár. 


Ég hef verið á námskeiðum hjá Upledger Stofnuninni á Íslandi í Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð (CranioSacral Therapy - level 1 & 2), vefræn tilfinningalosun (SomatoEmotional Release - level 1 & 2),  Advanced CranioSacral Therapy, meðferð i vatni (Hot Springs BioAquatic Exploration), ungbarnanámskeið (CranioSacral Therapy for Pediatrics), orku samþætting (Energy integration) og samskipti við mannsheilann (The Brain Speaks).
Ég hef verið á heilunarnámskeiði hjá Þórhalli Guðmundssyni (miðli), á miðilshæfileikanámskeiðum hjá Ragnheiði Ólafsdóttur (miðli), á slökunarnudd-, þrýstipunktameðferðar- og heilunarnámskeiðum hjá Reyni Katrínar (nuddari og heilari), á Óríón DNA heilunarnámskeiði hjá Eldey Huld Jónsdóttir (heilari), á námskeiði í meðhöndlun Trigger Punkta (viðbragðspunkta) hjá Ríkharði Jósafatssyni (Doctor of Oriental Medicine) og á námskeið í stjórnun og myndun trommuhringja (Drum Circle Facilitator Workshop) hjá Arthur Hull. 


Þar fyrir utan hef ég stundað sjálfsnám. Ég hef lesið ótal bækur sem tengjast því sem ég er að gera.


Ég er meðlimur í CranioSacral félagi Íslands og Bandalag Íslenskra Græðara (BIG).


Ég er Skráður græðari hjá Bandalagi Íslenskra Græðara (BIG) samkvæmt lögum um græðara.

  • b-facebook
bottom of page